Gerði systur eiginkonu sinnar ólétta

Maðurinn veit ekki hvernig hann á snúa sér í málinu.
Maðurinn veit ekki hvernig hann á snúa sér í málinu. mbl.is/Thinkstockphotos

Karlmaður leitaði ráða hjá Deidre ráðgjafa The Sun en honum finnst eins og hann sé fastur milli steins og sleggju eftir að systir eiginkonu hans sagðist vera ólétt eftir hann.

Ég fæ varla neina væntumþykju frá eiginkonu minni svo ég byrjaði að halda fram hjá með systur hennar. Nú segist systir hennar vera orðin ólétt og ég er skelfingu lostinn. Ég er 33 ára og konan mín er 32 ára. Hún vinnu fjóra daga í viku og sér um húsið og sex ára gömlu dóttur okkar, hún er alltaf upptekinn. Mágkona mín er lífsglöð og við eigum í frábæru ástarsambandi.

Ég geri það sem ég get til að hjálpa til við húsverkin og uppeldið en það er aldrei nógu vel gert. Hvað sem ég geri þá gerir hún það aftur, almennilega. Kynlíf okkar hefur farið versnandi. Ég veit ekki hvort hún var nokkurn tíman svo mikið fyrir kynlíf. Systir hennar er sex árum yngri og ég get bara líst henni sem kraftmikilli. Hún er lífsglöð og alltaf skemmtileg.

Hún á líka maka en sambandið er í slæmum málum. Eitt kvöldið var ég hjá þeim að sjá um smá pípulagningavandamál. Kærastinn hennar var einhvers staðar, á barnum held ég. Hún kom inn á baðherbergið til að athuga hvernig gengi og renndi hendinni yfir mittið á mér. Ég sneri mér við og brosti og hún fór óvænt með höndina ofan í buxurnar. Við keluðum og kysstumst og hún leiddi mig inn í auka herbergi þar sem við stunduðum dásamlegt kynlíf. Hún sagði að framvegis yrði þetta okkar herbergi.

Nú er hún ólétt og ég veit ekki hvað ég á að gera. Ég elska mágkonu mína en get ég yfirgefið konu mína og barn?

Deidre svarar með því að spyrja manninn hvort hann haldi að mágkonan hafi orðið ólétt til þess að klófesta hann? Hvort hún vilji hafa eiginmann systur fyrir sig eina og hætta með maka sínum?

Þú þarft að hugsa vel út í það hvar þú vilt vera. Mundir þú frekar vilja vera með eiginkonu þinni og dóttur þinni? Ef svo er verður þú að segja mágkonu þinni það svo hún viti hvar hún stendur þegar hún tekur ákvörðun um áframhald meðgöngunnar.

Hvort sem hún ákveður að eignast barnið með þér eða ekki þá eru líkur á því að eiginkona þín muni komast að framhjáhaldinu. Ef þú vilt að hjónabandið lifi af eða bara að þú getir fengið áfram að hitta stelpuna þína. Fáðu hjálp til að takmarka skaðann.

Mágkonan varð ólétt eftir manninn.
Mágkonan varð ólétt eftir manninn. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál