Ég vil ekki sofa hjá manni mínum lengur

Nútímakona leitar ráða hjá Mariella, ráðgjafa The Guardian, vegna þess …
Nútímakona leitar ráða hjá Mariella, ráðgjafa The Guardian, vegna þess að hún hefur misst áhugann á því að stunda kynlíf með eiginmanni sínum. mbl/Thinkstockphotos

Nútímakona leitar ráða hjá Mariella, ráðgjafa The Guardian, vegna þess að hún hefur misst áhugann á því að stunda kynlíf með eiginmanni sínum.

Ég er 38 ára kona uppalin sem múslimi og var því hrein mey þegar ég gifti mig. Við hjónin stunduðum reglulega kynlíf fyrstu árin, ég fékk eiginlega aldrei fullnægingu en mér fannst kynlífið samt alveg ánægjulegt. Eftir 11 ár af góðu hjónabandi varð kynlífið skyldustarf og nú byrði.  

Hann tengir kynlíf við ást og segir mér að ég sé sjálfselsk og stjórnsöm. Ég er í góðu starfi og ræð flest öllu heima fyrir og hann hefur alltaf verið góður og örlátur. 

Ég vil ekki enda sem skilin, einstæð móðir. Ég er með samviskubit en ég get ekki fengið mig til að verða kynferðislega örvuð í kringum hann lengur. Ég hef stundum kynferðislegar langanir í aðra menn en geri samt aldrei neitt í því. 

Hvernig kem ég kynlífinu mínu aftur í eðlilegar skorður?

Marellia hughreystir konuna með því að segja henni að þetta gerist hjá flestum hjónum vegna þess að ef þú þarft að stunda kynlíf með sömu manneskju alla ævi þá verður það fyrr eða síðar eins og starf.

Kynlíf er eins og að elda mat, sama hvað þú elska lokaafurðina mikið þá koma vikur, mánuðir, jafnvel ár sem að þú nennir ekki að standa í vinnunni sem fylgir því. Fyrir þig hefur örugglega verið erfitt að halda kynlífi áfram í öll þessi ár án þess að fá fullnægingu en það er hálfpartinn þér að kenna – þú þarft að segja hvað þér finnst gott.

Maðurinn þinn hljómar eins og góður maður sem hefur ekki getað lesið þig almennilega. Það er ekki skrýtið að þú hafir löngun í aðra menn því að þeir standa fyrir eitthvað nýtt og ófyrirsjáanlegt í staðinn fyrir vanagang.

Hins vegar, ef þú ert ekki tilbúin að taka af skarið í rúminu og segja hvað þú vilt mun nýi maðurinn lesa þig vitlaus á endanum og það kynlíf mun falla í sama vanagang. 

Ég get ekki töfrað fram að þú verðir kynferðislega örvuð í kringum eiginmanninn þinn en ég get hvatt þig til að hugsa aðeins um það sem þú vilt í rúminu og finna út hvað örvar þig.

Mariella segir að konan þurfi að vera duglegri að segja …
Mariella segir að konan þurfi að vera duglegri að segja hvað hún vill í rúminu. mbl/thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál