Framhjáhaldið er að fara að gifta sig

Konan veit ekki í hvorn fótinn á stíga nú þegar …
Konan veit ekki í hvorn fótinn á stíga nú þegar framhjáhaldið er að fara að gifta sig og hjónabandið er ekki með besta móti. mbl.is/Thinkstockphotos

Kona sem átti í framhjáhaldi með yfirmanni sínum leitaði ráða hjá Deidre, ráðgjafa The Sun. Konan er leið og einmana og hjónabandið í molum. 

Ég bað yfirmann minn um að hjálpa mér með tölvuvandamál og það endaði með því að við stunduðum kynlíf á skrifstofunni eftir að allir voru farnir. Ég er gift og ég elska eiginmann minn en við erum ekki svo náin lengur. Hann er upptekinn við að reka sitt eigið fyrirtæki. Við stundum bara kynlíf á tveggja til þriggja mánaða fresti. Meira að segja þá er það ekki spennandi.  

Eiginmaður minn er 28 ára, ég er 27 ára og var heimavinnandi húsmóðir og sá um sex ára gamla dóttur okkar þangað til í fyrra. Margt breyttist og þetta var allt mjög nýtt. Ég átti erfitt með að skilja allt og yfirmaður minn var mjög hjálpsamur. Smám saman urðum við náin og hann kyssti mig einn daginn. Hann sagðist vilja stunda kynlíf með mér en ég neitaði þó svo að mig langaði til þess að segja já. Ég sá að það gæti orðið flókið. En svo kom upp tölvuvandamálið og hann sagðist geta leyst það. Það tók langan tíma og þegar tölvan var tilbúin voru allir farnir heim.

Hann sagði að ég fengi borgaða yfirvinnu og sagði mér að koma inn á skrifstofu hjá honum til þess að fylla út pappíra. Hann stóð nálægt mér og áður en ég vissi vorum við byrjuð að kyssast aftur. Við stunduðum kynlíf og það var frábært. Þá byrjaði framhjáhaldið. Hann laumaði mér inn í íbúðina sína eftir vinnu. Við sendum hvort öðru SMS og hringdumst á nokkrum sinnum á dag. Hann sagði mér að samband okkar væri ekki alvarlegt en hann vissi að hjónabandið mitt væri ekki frábært og sagðist bara vilja skemmta mér.

Hann kemur úr asískri fjölskyldu og hann sagði mér nýlega að foreldrar hans hefðu fundið handa honum eiginkonu, svo fór hann til heimalands síns til að hitta hana. Nú er ég leið og einmana. Hann er í nýrri vinnu og er hættur að hringja og sendir sjaldan SMS. Ég sagði honum að hætta að hafa samband þar sem ég er að reyna að halda áfram með lífið en ég get ekki gleymt honum og langar til að snerta hann. Ég hef ákveðið að reyna vera ánægð með hjónaband mitt en ég er full sektarkenndar. Eiginmaður minn væri eyðilagður ef hann vissi af framhjáhaldinu.

Deidre benti konunni á að maðurinn hafi tekið það skýrt fram að hann vildi ekki neitt alvarlegt en hann hefði hins vegar opnað augu hennar fyrir því hversu gott kynlíf getur verið.

Nú er hann að fara gifta sig og er búinn að skipta um vinnu, það eru lok framhjáhaldsins. Það er erfitt fyrir þig en það er fyrir bestu og fyrir litlu stelpuna ykkar líka. Þetta getur verið til þess að bæta lífið heima fyrir. Ekki fylgja þeirri freistingu að hittast aftur. Það myndi bara halda tilfinningunum lifandi og koma í veg fyrir að þú einbeittir þér að fjölskyldu þinni. Þú byrjaðir með eiginmanni þínum þegar þið voruð frekar ung og kannski voru þið bæði frekar óreynd. Framhjáhaldið hefur gefið þér nýjar hugmyndir, svo nýttu þér það til að kveikja neistann með. Segðu eiginmanni þínum að þú elskir hann og þú viljir bæta kynlífið.

Kynlífið með eiginmanninum var ekki upp á marga fiska.
Kynlífið með eiginmanninum var ekki upp á marga fiska. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál