Sjö merki um andlegt framhjáhald

Framhjáhald er sjaldnast einfalt.
Framhjáhald er sjaldnast einfalt. Ljósmynd / Getty Images

Það getur verið mjög erfitt að gera greinarmun á milli saklausu vinasambandi og andlegu framhjáhaldi.

Ef fólk hefur einhverjar efasemdir um að makinn sé ástfanginn af „vini“ eða „vinkonu“ sinni vill maður samt alls ekki ásaka hann um neitt nema vita fyrir vissu.

Huffington Post spjallaði við nokkra sérfræðinga og bað þá um að gefa sér helstu merki um að um andlegt framhjáhald sé að ræða.

Maki þinn gæti verið að halda fram hjá þér andlega ef...

Það er eitthvað skrýtið við samskiptin þeirra

Helsta merki um andlegt framhjáhald er ef að þér finnst manneskjan óþægileg þegar hún er í kringum maka þinn, samkvæmt Elisabeth J. LaMotte sálfræðingi.

Ef að þú tekur eftir miklu daðri á milli þeirra í samskiptum á netinu eða þegar þau hittast, eins og mikil ástríða og augngotur, þá er eitthvað í gangi. Og þú munt oftast taka eftir því bætir hún við.

Hann er fjarlægur

Andlegt framhjáhald hefur oft þau áhrif að öll líkamleg nánd hverfur og þið hættið að stunda kynlíf segir Marcia Naomi Berger sálfræðingur. Maka þínum gæti fundist það framhjáhald með hinni manneskjunni að stunda kynlíf með þér bætir hún við.

Hann er heltekinn af símanum

Maki þinn tekur símann sinn með sér hvert sem hann fer og verður stressaður ef þú skoðar hann. Það er líklega eitthvað sem hægt er að hafa áhyggjur af samkvæmt Jennifer Chappell Marsh sálfræðingi.

Fólk sem heldur fram hjá andlega verður alltaf heltekið af símanum sínum. Ef maki þinn er alltaf að skoða hvort hann sé kominn með ný skilaboð í símann, alltaf að senda skilaboð og birta myndir á samfélagsmiðlum, gæti verið að hann sé að halda fram hjá bætir hún við.

Hann segir að þau séu „bara vinir“

Ef maki þinn segir að þau séu bara vinir er það oftast merki um framhjáhald sagði Zach Brittle sálfræðingur.

Þegar einhver er „bara“ vinur þinn kynnir þú hann sem vin þinn Jóa, eða vinnufélagann Pétur. Þú kynnir vini þína aldrei sem „bara“ vini þína bætir hann við.

Hann byrjar að tala minna um framtíðina

Ef þú tekur eftir því að maki þinn talar minna um framtíðina ykkar saman eða forðast það alveg að plana eitthvað með þér í framtíðinni gæti það verið merki um andlegt framhjáhald segir David McFadden sálfræðingur.

Hann vill ekki tala um hina manneskjuna

Stórt merki um framhjáhald er ef makinn neitar að tala um manneskjuna sem þú hefur áhyggjur af sagði Kurt Smith sálfræðingur.

Þegar maki þinn hættir að segja þér frá því sem hann gerir er það merki um að eitthvað sé að bætir hann við.  

Hann hefur sagt hinni manneskjunni mikið um samband ykkar

Fólk í heilbrigðum samböndum deila vandamálum sínum með öðrum sagði Brittle. Hann bætti við að það væri slæmt merki ef að „vinurinn“ eða „vinkonan“ vissu allt um ykkar vandamál.

Framhjáhald er framhjáhald, jafnvel þótt það sé bara andlegt.
Framhjáhald er framhjáhald, jafnvel þótt það sé bara andlegt. Ljósmynd / Getty Images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál