Tók viðhaldið með í brúðkaupsferðina

Eiginmaður konunnar tók framhjáhaldið sitt með í brúðkaupsferðina þeirra.
Eiginmaður konunnar tók framhjáhaldið sitt með í brúðkaupsferðina þeirra. mbl.is/Thinkstockphotos

Ung kona leitar til ráðgjafa The Sun vegna þess að hún er í vonlausu hjónabandi. Eiginmaður hennar ber enga virðingu fyrir henni og kemur illa fram við hana. 

Kæra Deirdre. Eiginmaður minn gjöreyðilagði brúðkaupsveisluna okkar og ég endaði á því að labba ein heim með tárin í augunum. Þegar ég kom svo loksins heim þá kom ég að honum í rúminu okkar með annarri konu sem hann tók síðan með í brúðkaupsferðina okkar.

Ég vann eins og brjálæðingur til þess að safna peningum fyrir þessu öllu saman á meðan hann drakk sig í hel með vinum sínum á næsta bar. Ég lét hann hafa peninga til þess að borga veisluþjónustuna, blómaskreytingarnar og salinn sjálfan en hann eyddi honum öllum í áfengi. 

Ég þurfti að selja rándýra giftingarkjólinn minn til þess að borga fyrir allt sem hann borgaði ekki og kaupa mér eitthvert ódýrt drasl í næstu búð á meðan hann fékk að vera í sínum dýru fínu jakkafötum á stóra daginn. 

Ég hefði átt að fara frá honum en fjölskylda hans leyfði mér það ekki. Þau drukku öll mikið og höguðu sér hörmulega. Einn úr fjölskyldu hans lenti í slag við frænda minn þar sem brúðarkakan datt í gólfið og skemmdist. Svo fóru þeir bara að dansa og ég þurfti að þrífa allt eftir þá. 

Þessi dagur var hræðilegur og ég endaði á því að labba heim til okkar alein og hágrátandi þar sem ég fann nýbakaða eiginmann minn að stunda kynlíf með fyrrverandi kærustu sinni. Hann baðst aldrei fyrirgefningar en tók hana með sér í fríið sem átti að vera brúðkaupsferðin okkar.

Ég hef nú kynnst öðrum manni, sem er alveg frábær og kemur vel fram við mig. Þegar mér loksins tókst að segja honum frá hjónabandinu mínu þá sagði hann mér að ég ætti að skilja við eiginmanninn og vera frekar með honum.

Ætti ég að halda áfram að reyna að láta hjónabandið mitt virka eða gefast upp?

Deirdre segir konunni að maður sem er svona grimmur á brúðkaupsdaginn sinn sé ekki að fara að breytast og verða betri maður.

Ekki bíða eftir því að hann breytist, hann mun ekki breytast. En ekki fara frá honum bara til þess að byrja með öðrum manni. 

Þú gætir verið þessi kona sem velur vonda kosti því þú sérð ekki það sem er undir yfirborðinu. Ef þú átt föður sem kom illa fram við þig þá er það kannski útskýringin. 

Konan labbaði inn á eiginmann sinn með fyrrverandi kærustu sinni …
Konan labbaði inn á eiginmann sinn með fyrrverandi kærustu sinni á brúðkaupsdaginn. Skjáskot/Women's Health
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál