Kærastinn tók nektarmyndir á laun

Kærastinn hafði dundað sér við að mynda kærustu sína, nakta, …
Kærastinn hafði dundað sér við að mynda kærustu sína, nakta, án hennar vitundar. Getty Images

„Ég er 25 ára og hef verið í sambandi með 35 ára gömlum manni í hálft ár. Nýlega fann ég möppu í tölvunni hans þar sem er að finna myndbönd af mér nakinni, tekin án minnar vitundar. Eitt myndbandið sýnir mig klæða mig í föt, annað sýnir mig í sturtu og svo eru önnur myndbönd af mér þar sem ég ligg sofandi í rúminu,“ segir í fyrirspurn ungrar konu sem leitaði á náðir lesenda vefritsins Guardian.

„Ég er í áfalli, hann er svo ljúfur, kurteis auk þess sem hann virðist fullkomlega eðlilegur. Fram að þessu hafa engar viðvörunarbjöllur hringt, né heldur hef ég orðið vör við skrýtna hegðun af hans hálfu. Satt best að segja er þetta besta samband sem ég hef verið í. Ég hef ekki trú á því að hann ætli sér að deila myndböndunum með öðrum, en það veldur mér áhyggjum að hann hafi ekki spurt mig leyfis. Ég veit varla í hvorn fótinn ég á að stíga.“

Nokkrir lesendur hafa rétt fram hjálparhönd og ausið úr viskubrunnum sínum. Til að mynda benti einn á að þrátt fyrir að kærastinn virtist indæll, væru gerðir hans engu að síður brot á friðhelgi konunnar.

Annar benti á að sex myndbönd sem tekin væru án samþykkis væru sex myndböndum of mörg. Þá hvatti lesandinn konuna til að eyða myndböndunum og segja skilið við kærastann hið snarasta.

Kærustuna grunaði ekkert, þar til hún rakst á myndböndin í …
Kærustuna grunaði ekkert, þar til hún rakst á myndböndin í tölvu mannsins. Getty Images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál