Minn fyrrverandi vill stunda kynlíf í leyni

Konunni finnst eins og maðurinn sé að nota hana.
Konunni finnst eins og maðurinn sé að nota hana. mbl.is/Thinkstockphotos

Ung kona leitaði ráð hjá Deidre ráðgjafa The Sun en fyrrverandi kærasti hennar vill stunda kynlíf með henni án þess að segjast vera með henni. 

Fyrrverandi kærasti minn sendi mér skilaboð úr afmælisveislu pabba síns í síðustu viku og bað mig um að hitta sig til þess að stunda kynlíf. Hann krafðist þess að þetta væri leyndarmál og þetta þýddi ekkert. Hvað heldur hann að ég sé?

Við vorum hamingjusöm í eðlilegu sambandi og fluttum inn í leiguíbúð fyrir ári. Hann er 22 ára og þetta var í fyrsta skipti sem hann flutti að heiman. Ég er 24 ára og skipti um vinnu og flutti til þess að vera með honum.

Eini gallinn var sá að það skipti hann of miklu máli hvað annað fólk hugsaði. Hann vildi aldrei bregðast neinum, sérstaklega ekki mömmu sinni og pabba. Ég þurfti að oft gera málamiðlanir og eyddi miklum tíma með fjölskyldu hans. Við fórum út að borða með þeim um helgar.

Einn laugardag fyrir sex mánuðum eyddi hann klukkutíma í að tala við pabba sinn. Daginn eftir sagði hann mér að hann væri að fara frá mér. Þetta var gríðarlegt áfall. Við vorum bæði niðurbrotin en hann gat ekki útskýrt ástæðuna. Ég hef aldrei fengið útskýringu. Hann flutti inn til foreldra sinna og lét mig finna út úr öllu varðandi íbúðina. Núna bý ég ein, eitthvað sem ég vildi aldrei, langt í burtu frá mínum heimaslóðum og frá vinum.

Hann kom og grét hjá mér og það endaði oft með því að við stunduðum kynlíf. Ég var til staðar fyrir hann jafnvel þótt það væri að gera út af við mig að sjá hann í uppnámi, það setti mig í meira uppnám.

Nokkrum mánuðum síðar erum við enn þá að hittast og stunda kynlíf en hann segist ekki vilja neitt meira. Hann segir ekki fjölskyldunni frá okkur. Hann segist ekki vilja að neinn viti að við séum enn þá að hittast. Í síðustu viku hélt pabbi hans upp á fimmtugsafmælið sitt. Minn fyrrverandi varð nokkuð drukkinn og bað mig um að koma og stunda kynlíf en ekki segja neinum frá því. Við gerðum það en eftir á leið mér eins og hann væri að nota mig og bað hann um að hætta að hafa samband. Ég elska hann samt svo mikið ég hef áhyggjur af því ég hef áhyggjur af því að ég sé ekki nógu sterk til að standa við mín orð.

Deidre segir að þó svo að hún viti ekki hvað pabbi hans sagði við hann eða hvort þau hafi eitthvað á móti henni þá er það nokkuð ljóst að það er ekki í lagi fyrir manninn að koma svona fram við hana.

Ég skil að þú ert enn þá hrifin af honum en þú ert í rauninni að hvetja hann til þess áfram. Segðu honum að þú munir einungis sofa hjá honum í samhengi við skuldbindingu og opið samband. Kannski mun hann sakna þín svo mikið að hann mun ákveða að fara gegn vilja foreldra sinna, ef þetta snýst um það. Ef ekki þá verður þú að hætta með honum.

Konan er enn þá hrifin af manninum.
Konan er enn þá hrifin af manninum. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál