Kynlíf tvisvar til þrisvar á ári

Konan virðist ekki vera spennt fyrir kynlífinu.
Konan virðist ekki vera spennt fyrir kynlífinu. mbl.is/Thinkstockphotos

Karlmaður leitaði ráða hjá Deidre ráðgjafa The Sun vegna kynlífsleysis í hjónabandinu. 

Kæra Deidre, ég er pirraðu og óhamingjusamur yfir því að eiginkona mín vill bara stunda kynlíf tvisvar til þrisvar á ári. Þegar við gerum það er það uppgerðarlegt að hennar hálfu. 

Ég er fertugur og hún er 38 ára. Við höfum verið gift í 15 ára og eigum stráka, tólf og tíu ára. Ég tek stundum reiðiskast en ekkert breytist. Hún fer út með vinum sínum en þolir ekki að gera eitthvað með mér. Ég er á þunglyndislyfjum út af þessu. 

Ég vil ekki vera hér. Hún veit það en gerir ekkert. Skilnaður mundi koma krökkunum í uppnám en ég get ekki haldið þessu áfram. 

Deidre bendir á að eiginkonan hljóti líka að vera mjög óhamingjusöm. 

Að vera saman í ömurlegheitum gæti verið að skaða börnin meira en rólegur skilnaður mundi gera. Öskur gera hinsvegar allt verra. Lofaðu mér því að vera rólegur og hljóðlátur, biddu síðan eiginkona þína að útskýra hennar sýn á aðstæðurnar. Kannski hafi þið tvö aldrei fundið það sem fullnægir henni kynferðislega eða kannski er hún óánægð með sambandið í heild sinni. 

Hjónabandið hefur verið betra.
Hjónabandið hefur verið betra. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál