Grenntist og vonbiðlarnir hurfu

Strákarnir voru framhleypnari þegar Glover var feit.
Strákarnir voru framhleypnari þegar Glover var feit. skjáskot/Instagram

Kelly Glover hélt að hún gæti valið úr stefnumótaóskum eftir að hún grenntist um 67 kíló. Raunin varð hinsvegar sú að hún átti mun erfiðara með að komast á stefnumót eftir að hún grenntist. 

Í grein News.com.au kemur fram að Glover hafi ekki verið að leitast eftir viðurkenningu með stefnumótaboðum hinsvegar hafi henni þótt þetta skrítið þar sem hún var enn sama manneskjan. 

Glover sem er nú 84 kíló spurði vin sin að því hver ástæðan gæti verið. Vinurinn sagði að fólk væri með meira sjálfstraust þegar það væri að eltast við feitar konur. Glover fannst þetta skrítið en kannaðist þó við þá goðsögn að feitar stelpur væru auðveldar. Hún segir það hinsvegar vera algjöra vitleysu. 

Glover er orðin þreytt á því að bíða og hefur tekið ástarmálin í sínar hendur. Hún notar smáforrit þar sem konan byrjar samtalið. „Það er komin tími til að hrista upp í hlutunum og taka fyrsta skrefið,“ sagði Glover. 

Kelly Glover er búin að missa 67 kíló.
Kelly Glover er búin að missa 67 kíló. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál