Það eru margir sem bíða lengi eftir hinum eina rétta eða hinni einu sönnu. Pararáðgjafinn Esther Perel vill hinsvegar meina að þessi eina sanna ást sé ekki til.
Í grein Buisness Insider segir Perel að í stað þess að leita að hinum eina sanna ætti fólk að finna aðra manneskju sem samræmist manni sjálfum. Rannsóknir benda til þess að sú trú að trúa því að einhverjar tvær manneskjur eigi að vera saman eða eða ekki getur komið í veg fyrir að hlutirnir gangi upp hjá þeim manneskjum.
Perel segir að fólk reyni að finna upp allskonar rökstuðning til þess að réttlæta samvist sína með einhverri manneskju. Hún bendir einnig á það að margt fólk í dag er stressað yfir því að velja ranga manneskju.
Þrátt fyrir að einn aðili sé ekki ætlaður okkur þá er örugglega ákveðið fólk betur til þess fallið að vera saman en annað. Það gæti þá verið að einhver manneskja passaði best við einhvern einn.
„Það er aldrei þessi eini. Það er ein manneskja sem þú kýst og þú ákveður að þú vilt byggja eitthvað með henni. En að mínu mati, þá gætu líka verið aðrir, þú kaust þennan eina. Þegar þú kýst einn þá hafnar þú öðrum,“ segir Perel og bætir því við að maður breyti þeim sem maður kýs í hinn eina rétta.