Þrátt fyrir að við séum öll ólík eru þarfir okkar stundum alveg eins. Þetta á vel við í svefnherberginu en þar eru ákveðnar leikreglur sem gefast alltaf vel og konur vilja að bólfélagar þeirra fara eftir. Cosmopolitan fór yfir þessar leikreglur.
1. Að bólfélaginn hugsi um unað kvenna
Kona tekur ekki bara þátt í kynlífi til þess að veita öðrum unað. Góður bólfélagi hugsar um unað beggja eða allra aðila.
2. Hugsaðu út í verjur
Það er alltaf betra að gera ekki ráð fyrir að konan hugsi ein um getnaðarvarnir. Það er gott að vera tilbúinn með verjur, enda kemur smokkurinn líka í veg fyrir kynsjúkdóma.
3. Fullnæging
Kynlíf hjá gagnkynhneigðu pari ætti ekki að enda með því að karlinn fái fullnægingu, sérstaklega ef að konan er ekki búin að fá það. Ef karlmaður verður búinn á því eftir að hafa fengið það ætti hann að huga að því fyrr en seinna að fullnægja konunni.
4. Samskipti
Stundum er í lagi að þegja og hafa hljótt þegar kynlíf er stundað. Hins vegar er það ekki verra þegar pör eiga samskipti sín á milli á meðan leikar standa sem hæst. Það getur verið gott að spyrja hvort eitthvað sé að virka fyrir hinn aðilann eða leiðbeina hinum aðilanum.
5. Hreint rúm
Það er ekki mjög sexí að stunda kynlíf í óhreinum rúmfötum með storknuðum svita eða öðru gumsi.
6. Hleðslutæki
Þó svo að hleðslutæki fyrir síma sé ekki nauðsynlegur hlutur í sjálfu kynlífinu þykir það tillitsemi að bjóða næturgesti sínum að hlaða símann sinn, hvort sem hún stoppar stutt eða í heila nótt.
7. Forleikur
Kynlíf snýst ekki bara um að fá fullnægingu ef svo væri mundu konur láta kynlífsleikföng duga. Njótið þess að kela í forleiknum.
8. Sokkana burt
Það er skrítið að sjá einhvern í sokkunum einum fata. Ef fólk ætlar að stunda kynlíf nakið ætti fólk að fara úr sokkunum líka.
9. Raunsæjar væntingar
Kynlíf í alvörunni er ekki eins og það birtist í klámmyndum eða rómantískum kvikmyndum. Slakið á, talið saman og ekki búast við að hinn aðilinn sé tilbúinn í skrítna hluti sem sýndir eru í klámi.
10. Of ákafar munngælur.
Þetta útskýrir sig sjálfkrafa.