Komast af án kynlífs í þrjá mánuði

Skortur er á kynlífi hjá hjónaleysunum.
Skortur er á kynlífi hjá hjónaleysunum. mbl.is/Thinkstockphotos

Ungur maður leitaði ráða hjá Deidre, ráðgjafa The Sun, vegna kynlífsleysis. 

Kæra Deidre, unnusta mín svaf hjá öðrum manni en nú segir hún að henni finnst ekki lengur gott að stunda kynlíf. Kynlífið okkar varð glatað eftir að hún eignaðist dóttur okkar.

Dóttir okkar er eins árs, ég er 25 ára og unnusta mín 28 ára. Við getum sleppt því að stunda kynlíf í þrjá mánuði. Ef ég sting upp á einhverju verður hún brjáluð og segist ekki fíla kynlíf lengur. 

Hún fór í sumargrillpartý á meðan ég var að vinna og kom heim mjög seint. Hún neitaði því að eitthvað hefði gerst en ég fann sönnunargögn þess efnis að hún hafi haldið fram hjá. Skilaboð í símanum hennar þar sem hún sagði vinkonu sinni frá kynlífi með manni þar, sagði að það hefði verið glatað. Hún loksins viðurkenndi það og ég fyrirgaf henni. Nú vil ég bara að hún byrji að stunda frábært kynlíf með mér aftur. 

Deidre telur að því miður verði það ekki auðvelt. 

Þið þurfið að finna út úr þeim vandamálum sem liggja á bak við það að hún vilji ekki stunda kynlíf, að eignast barn og mögulega að finnast hún vera föst heima. Ertu viss um að henni finnist kynlífið ykkar vera fullnægjandi?

Segðu henni að þú elskir hana fyrir allt það sem hún er, ekki bara kynlífsins vegna, en kynlíf sé mikilvægur þáttur í nánu sambandi. Spurðu hana hvað mundi hjálpa henni að njóta kynlífs aftur. 

Unnustan segist vera hætt að fíla kynlíf.
Unnustan segist vera hætt að fíla kynlíf. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál