Greip pabba sinn í bólinu með öðrum manni

Faðirinn var að laumupúkast með tengdasyni sínum.
Faðirinn var að laumupúkast með tengdasyni sínum. mbl.is/Thinkstocphotos

Unglingur sem varð fyrir þeirri óþægilegu lífsreynslu að koma að föður sínum í rúminu með öðrum manni leitaði ráða hjá Deidre ráðgjafa The Sun

Kæra Deidre, einn daginn var ég veikur og kom fyrr heim úr skólanum þannig að ég gekk inn á nakinn pabba minn á fullu með kærasta systur minnar. 

Ég er 17 ára strákur. Ég opnaði sjálfur og heyrði skrítnar stunur og læti af efri hæðinni. Ég fór hljóðlega upp og komst að því að hljóðin komur úr svefnherbergi foreldra minna. Faðir minn er 48 ára og kærasti systur minnar er 23 ára. Dyrnar voru ekki alveg lokaðar þannig ég sá inn. Það fór ekki á milli mála hvað var í gangi. 

Ég var miður mín og í uppnámi og vissi ekki hvað ég ætti að gera. Ég fór hljóðlega aftur niður og fór út. Ég fór til frænku minnar og sagði ekkert um það sem ég sá. Á ég að segja mömmu minni eða systur frá því sem ég sá eða bara lifa með þessu?

Deidre segir stráknum að það að segja frá í þessum aðstæðum geti haft óvæntar afleiðingar en skilur um leið að þetta sé truflandi fyrir hann. 

Segðu föður þínum frá því sem þú sást og í hversu miklu uppnámi þú ert. Það ætti líka að verða áfall fyrir hann og ég vona að hann átti sig á því að hann verður að hætta þessu eins og skot. 

Strákurinn er miður sín og veit ekki hvort hann eigi …
Strákurinn er miður sín og veit ekki hvort hann eigi að segja frá. mbl.is/Thinkstocphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál