Sambandsráð úr Hollywood

Jessica Biel og Justin Timberlake hafa gaman saman.
Jessica Biel og Justin Timberlake hafa gaman saman. mbl.si/AFP

Þrátt fyrir að stjörnurnar í Hollywood eigi met í skilnuðum og stuttum hjónaböndum (hver man ekki eftir 55 klukkustunda löngu hjónabandi Britney Spears?) eru líka stjörnupör sem virðast eiga gott samband. Women's Health tók saman sambandsráð frá nokkrum slíkum. 

Justin Timberlake og Jessica Biel

Leikkonan Jessica Biel sagði eitt sinn í viðtali að þau Timberlake hefðu sömu gildi en bæði trúa þau á trúnað og hreinskilni. Þeim finnst mikið af sömu hlutunum skemmtilegir og finnst skemmtilegt að hafa gaman. „Ef þú getur fundið það og einhvern til þess að deila sömu gildum og þú er það eins og mark,“ sagði Biel. 

Blake Lively og Ryan Reynolds

Lively sagði í viðtali að hún komi fram við eiginmann sinn eins og vinkonu sína og Reynolds fram við hana eins og besta vin sinn. Gott vinasamband virðist virka fyrir leikarahjónin. 

Blake Lively og Ryan Reynolds ásamt dætrum sínum.
Blake Lively og Ryan Reynolds ásamt dætrum sínum. mbl.is/AFP

John Legend og Chrissy Teigen

Tónlistarmaðurinn og ofurfyrirsætan leggja áherslu á að eiga rómantíska stund saman. „Þið verðið að hafa tíma fyrir hvort annað, fara í stuttar ferðir eins og við gerðum fyrir afmælið hennar og fara stundum út að borða bara þið tvö,“ sagði Legend. 

Chrissy Teigen og John Legend gefa sér tíma fyrir hvort …
Chrissy Teigen og John Legend gefa sér tíma fyrir hvort annað. mbl.is/AFP

Neil Patrick Harris og David Burtka

Leikarahjónin Harris og Burtka leggja áherslu á góð samskipti. Harris sagði í viðtali að það væri mikilvægt að tala um hlutina ekki byrgja allt inni. Ef að tala saman þýði að hækka röddina þá verður það bara að vera svoleiðis. 

David Burtka og Neil Patrick Harris tala saman.
David Burtka og Neil Patrick Harris tala saman. EPA

Kristen Bell og Dax Shepard

Leikarahjónin leggja sig mikið fram í hjónabandinu en Bell gaf það út að það þyrfti að reyna mjög mikið, það væri óþægilegt en vel þess virði. Hún benti einnig að að það væri mikilvægt að vera berskjaldaður. 

Dax Shepard og Kristen Bell.
Dax Shepard og Kristen Bell. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál