Jennifer Aniston fær sér fyrsta húðflúrið

Jennifer Aniston er komin með húðflúr á hægri fótinn.
Jennifer Aniston er komin með húðflúr á hægri fótinn. MARIO ANZUONI

Leikkonan Jennifer Aniston er þekkt fyrir huggulegheit og látlausan og elegant klæðaburð. Hún sést aldrei blindfull á almannafæri, hún gerir enga skandala og passar orðspor sitt vel. Hún er næstum því alltaf með sömu hárgreiðslu og fer aldrei í of flegna kjóla. Nú berast þær fréttir utan úr heimi að hún sé búin að fá sér sitt fyrsta húðflúr. 

Dömur eins og Jennifer Aniston, sem eru ekki svona húðflúrtýpur, geta því kannski farið að velta þessum möguleika fyrir sér. 

Húðflúr Jennifer Aniston er þó hvorki yfirþyrmandi né stórt því það er er staðsett á hægri fæti, rétt fyrir ofan ilina. Og hvað ætli standi? Jú, orðið Norman. Það orð er víst í miklu uppáhaldi hjá leikkonunni. Svo miklu uppáhaldi að hún var tilbúin til að láta húðflúra það á sig. 

Hvað ætli frú Aniston geri næst? 

Jennifer Aniston.
Jennifer Aniston. AP
Jennifer Aniston.
Jennifer Aniston. Reuters
Jennifer Aniston.
Jennifer Aniston. AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál