Kristrún Ösp er byrjuð aftur með Dwight Yorke

Dwight Yorke og Kristrún Ösp Barkardóttir í Manchester um helgina.
Dwight Yorke og Kristrún Ösp Barkardóttir í Manchester um helgina. mbl.is/Úr einkasafni

Fyrirsætan og stílistinn Kristrún Ösp Barkardóttir er byrjuð aftur að hitta sinn fyrrverandi, Dwight Yorke, fótboltamann. Hún dvaldi hjá honum í Manchester um helgina og segir hún að þau hafi haft það mjög gott.

„Við fórum út að borða í hádeginu og á kvöldin og kíktum aðeins út á lífið í Alderley Edge. Svo keyrðum við til London þar sem hann var að spila krikket á góðgerðarsamkomu," segir Kristrún Ösp.

Þegar hún er spurð að því hvenær hún hafi byrjað aftur að hitta Dwight segir hún að það hafi gerst eftir að hún hætti með Sveini Andra Sveinssyni lögmanni.

„Þegar við fórum að spjalla aftur saman ákváðum við að hittast sem fyrst og ég fór til hans um helgina.

Kristrún Ösp hætti með Dwight seint á síðasta ári en hún segir að það sé alltaf sterkur strengur á milli þeirra.

„Við náum hrikalega vel saman," segir hún og segir að hann heilli hana alltaf upp úr skónum því hann sé alltaf brosandi og nái vel til fólks.

„Svo er hann bara rosaflottur."

Þegar Kristrún Ösp er spurð að því hvers vegna hún hafi hætt með Sveini Andra segir hún að sambandið hafi ekki gengið upp.

„Fólk sýnir oft sínar bestu hliðar fyrstu mánuðina en svo kemur allt annað í ljós. Sveinn er mjög góður maður og ég hef ekkert slæmt um hann að segja. En ég held bara að hann sé ekki tilbúinn til að gefa piparsveinalífið upp á bátinn. Ég skil það alveg því hann var giftur lengi. En það er einhvern veginn ekki málið að vera með manni sem er alltaf að reyna við annað kvenfólk á facebook."

Kristún Ösp er á leið í sumarfrí og er ferð hennar heitið norður í land þar sem hún ætlar að heimsækja fjölskyldu sína. Svo er á planinu að fara út og hitta Dwight þar sem hann verður annaðhvort á Barbados eða Trinidad.

Dwight Yorke með félögum sínum að spila krikket í þágu …
Dwight Yorke með félögum sínum að spila krikket í þágu góðgerðarmála. mbl.is/Úr einkasafni
Kristrún Ösp og Dwight Yorke.
Kristrún Ösp og Dwight Yorke. mbl.is/Úr einkasafni
Hún segir að hann sé hrikalega flottur.
Hún segir að hann sé hrikalega flottur. mbl.is/Úr einkasafni
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál