Langar mikið að komast á þorrablót

Rithöfundurinn Marjolijn Hof. stækka

Rithöfundurinn Marjolijn Hof. mbl.is

Morgunblaðið María Ólafsdóttir maria@mbl.is

Hollenski barnabókahöfundurinn Marjolijn Hof dvelur nú við skriftir á Íslandi. Bækur hennar hafa notið vinsælda síðastliðin ár og hefur sú nýjasta, Minni líkur, meiri von, verið þýdd á 12 tungumál meðal annars íslensku. Marjolijn var alin upp á miklu bókaheimili og hefur alla tíð haft gaman af því að lesa barnabækur.

Hollenski rithöfundurinn Marjolijn Hof er nú stödd á Íslandi og situr við skriftir í hinu íslenska vetrarríki. En Marjolijn kom til landsins fyrr í mánuðinum og dvelur í grennd við Laugarvatn þar sem hún vinnur að næstu bók sinni. Sú saga gerist að vetri í vonskuveðri og er því vel við hæfi að skrifa bókina á Íslandi.

Tvær gylltar uglur

Marjolijn féll fyrst fyrir landinu þegar hún kom hingað á ferðalagi fyrir nokkrum árum síðan. Hún hefst nú við í Gullkistunni svokallaðri, en svo kallast listamannaíbúðir á og í grennd við Laugarvatn. Marjolijn er þekkt fyrir barnabækur sínar en í bígerð er að gera kvikmynd eftir nýjustu bók hennar, Minni líkur meiri von. Fyrir þá bók hlaut hún tvær Gylltar uglur, virtustu barnabókaverðlaun Hollands, aðra frá dómnefnd fagfólks og hina frá dómnefnd skipaðri börnum og unglingum.

Bækur um allt hús

Marjolijn er fædd í Amsterdam árið 1956 en uppalin í Hague. Faðir hennar var mikill safnari og safnaði ýmiskonar gripum og bókum og þá sérstaklega barnabókum.

„Faðir minn hafði mikið gaman af barnabókum og í mínum huga hafa aldrei verið nein greinileg skil á milli barnabóka og bóka fyrir fullorðna. Enda hef ég alltaf haft og hef enn gaman af því lesa barnabækur,“ segir Marjolijn. En strax í barnæsku var hún farin að skrifa sögur og myndskreyta þær. Ferill Marjolijn sem rithöfundar hófst þó ekki að ráði fyrr en árið 1999. Þá hafði hún starfað sem bókasafnsfræðingur í ein 20 ár en hún segir eiginmann sitt hafa hvatt sig til að helga sig algjörlega ritstörfunum. Hvatning hans varð til þess að hún fékk loks kjark til að sleppa hendinni af dagvinnunni og gerast rithöfundur.

Gisti í Herhúsinu

Í dag hefur Marjolijn skrifað fjölmargar vinsælar barnabækur en Minni líkur meiri von hefur nú verið þýdd á 12 tungumál. Hún hefur áður dvalið hér á landi við ritstörf og nýjasta barnabók hennar fjallar um síldarárin á Siglufirði. Þar dvaldi hún um tíma síðastliðið haust og gisti í Herhúsinu, aflaði sér heimilda á Síldarminjasafninu og byrjaði að leggja drög að bókinni.

„Ég býst ekki við að klára bókina í þessari ferð þar sem ég skrifa mjög hægt og fer með hraða snigilsins. En nú er ég hingað komin til að skrifa og er ekki með bíl meðan á dvöl minni stendur svo það mun fátt geta truflað mig. Ég væri þó gjarnan til í að komast á alvöru íslenskt þorrablót. Í mörg ár hef ég verið grænmetisæta en sá fljótt að hér á Íslandi væri eðlilegra að borða lambakjöt frekar en grænmeti eða annað sem flutt er langt að. Það samræmist því í raun betur mínum umhverfissjónarmiðum að borða lambakjöt þegar ég er stödd hér. Ég hugsa að það myndi koma fjölskyldu minni heima mjög á óvart að sjá mynd af mér að gæða mér á sviðahaus,“ segir Marjolijn í léttum dúr.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Átti hún barn fyrir 10 dögum?

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
12:55 Þóra Arnórsdóttir slær Beyoncé og Victoriu Beckham út enda komin í sitt fyrra form 10 dögum eftir barnsburð.   Meira »

Röddin í góðu formi eftir fæðinguna

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
í gær Óperusöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir lifir sannkölluðu heimsborgaralífi úti í Madrid, og þar er daglegt líf allt annað en hversdagslegt. Meira »

Leyfði Rihönnu ekki að heimsækja kærastann

Kim Kardashian.
07:00 Kim Kardashian vísaði Rihönnu á dyr þegar hún ætlaði að heimsækja kærastann hennar þegar hann var með tónleika í Lundúnum.   Meira »

Hundarnir á bakvakt

Charlize Theron á hjálpsama hunda.
í fyrradag Charlize Theron fær hjálp við barnauppeldið úr óvæntri átt.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is