Vika í lífi Þóru Karítasar: Jákvæður páfagaukur í uppáhaldi

Mynd 1 af 2
Þóra Karítas Árnadóttir. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Morgunblaðið Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is

Lífið er engin lognmolla hjá Þóru Karítas Árnadóttur um þessar mundir. Strembnar æfingar á Gulleyjunni standa nú yfir en verkið er leikgerð Karls Ágústs Úlfssonar og Sigurðar Sigurjónssonar á sjóræningjasögunni frægu sem verður frumsýnd hjá Leikfélagi Akureyrar á föstudag, 27. janúar. Finnur náði í skottið á Þóru milli æfingatarna og bað hana að segja frá líflegri viku í leikhúsinu.

Mánudagur: Er svolítið meyr þegar ég ýti á send-takkann í tölvunni og skila af mér viðtali í Fréttatímann við kröftugan hóp karla sem segja hingað og ekki lengra og vilja að karlmenn stígi fram til að mótmæla nauðgunum. Fer í bíó eftir æfingu á Gulleyjunni að horfa á Meryl Streep fara á kostum sem Margaret Thatcher.

Þriðjudagur: Erum að renna Gulleyjunni í nær fyrsta sinn. Lít á einum tímapunkti á Þórunni Clausen samleikkonu mína sem er íklædd náttkjól og við áttum okkur samtímis á að ég fór í vitlausan búning í hraðskiptingu. Hún fær hláturskast meðan ég panikkera – enda á sviðinu í sjóræningjabúningi að ofan og pilsi að neðan.

Miðvikudagur: Býð leiklistarnemendunum að fylgjast með æfingu á Gulleyjunni.Páfagaukurinn mætir líka á svæðið. Ég hrífst af jákvæðum og nægjusömum orðaforða hans: Já, halló og hæ!

Fimmtudagur: Ljósmyndarennsli. Kraftur að færast í leikhópinn og innra líf loks að fæðast og búningaskiptin komin á hreint. Skín í gullið.

Föstudagur: Æfingu á Gulleyjunni lýkur kl. 16.00. Fer til hnykkjara sem hnykkir í hláturtaugina því ég fæ hláturskast á flugvellinum enda í góðum félagsskap.

Laugardagur: Er svolítið lost í Reykjavík. Keyri gegnum bílaþvottastöð og finnst ég stödd í barnaleikriti. Ógurlegir rauðir og grænir þvottaburstar sem strjúka rúðurnar meðan bíllinn mjakast í gegn. Kíki í litríkt afmæli hjá Maríu Ellingsen. Indverskt þema og aðdáunarvert hve margir mæta í búningi.

Sunnudagur: Flýg til Akureyrar. Mjaka mér hægt inn í sjóræningjaævintýrið í tæknirennsli um kvöldið. Sendi út bæn um að allt blessist vel og að tónlistin og leikhúsið megi snerta hjörtu. Skemmtileg vika framundan enda fátt meira spennandi en krassandi sjóræningjasöngleikur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Átti hún barn fyrir 10 dögum?

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
12:55 Þóra Arnórsdóttir slær Beyoncé og Victoriu Beckham út enda komin í sitt fyrra form 10 dögum eftir barnsburð.   Meira »

Röddin í góðu formi eftir fæðinguna

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
í gær Óperusöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir lifir sannkölluðu heimsborgaralífi úti í Madrid, og þar er daglegt líf allt annað en hversdagslegt. Meira »

Leyfði Rihönnu ekki að heimsækja kærastann

Kim Kardashian.
07:00 Kim Kardashian vísaði Rihönnu á dyr þegar hún ætlaði að heimsækja kærastann hennar þegar hann var með tónleika í Lundúnum.   Meira »

Hundarnir á bakvakt

Charlize Theron á hjálpsama hunda.
í fyrradag Charlize Theron fær hjálp við barnauppeldið úr óvæntri átt.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is