Ekki ennþá kominn með bílpróf

Mynd 1 af 2
Pan Thorarensen tónlistamaður Árni Sæberg
Morgunblaðið Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is

Raftónlistarmaðurinn Pan Thorarensen hefur gefið út talsvert af efni undir nafni Beatmakin' Troopa og einnig sem hluti Stereo Hypnosis. Þessa dagana er hann í stúdíói að vinna að nýju efni sem er væntanlegt á næstunni. Þá er hann að leggja lokahönd á bókanir fyrir tónleikaferðalag þeirra feðga, hans og Óskars, út í heim. Þá er undirbúningur kominn á fullt fyrir tónleikahátíðina „Extreme Chill Festival“ en hún verður haldin helgina 29. júní til 1. júlí næstkomandi. Pan deilir hér sínum óskalista.

Óskaiðjan? Að vera rafbóndi undir Jökli þar sem er besta aðstaða á Íslandi og þó að víðar væri leitað til þess að skapa. Þar myndi ég sá, rækta og uppskera tónlist alla daga allan ársins hring. Uppskeruhátíðin myndi svo vera Extreme Chill Festival þar sem allir vinir mínir kæmu og við deildum okkar uppskeru á sameiginlegri raftónlistarhátíð í einstakri orkunni frá Snæfellsjökli.

Óskamaturinn? Það er hin fullkomna ORA-máltíð með öllu sem tilheyrir...kjötbollur í brúnni sósu beint úr dósinni, grænar baunir, rauðkál og gular baunir. Þessu er auðvitað skolað niður með ísköldum Kalda frá Árskógsströnd.

Draumabíllinn? Gamli góði Land Roverinn sem hefur alltaf sinn sjarma...ekki væri verra að hafa gamalreyndan bílstjóra með þar sem ég hef ekki ennþá náð mér í bílpróf!!!

Draumaverkefnið? Það var lengi vel að vinna með karli föður mínum, tónlistar- og listamanninum Óskari Thorarensen, sem er búinn að vinna í fjöldamörg ár við tónlist. Draumurinn hefur nú á síðustu árum ræst þar sem við höfum verið að vinna saman að tónlist sem rafdúettinn Stereo Hypnosis. Höfum við ferðast víða um heim og spilað á fjöldanum öllum af tónleikum ásamt því að gefa út 3 diska, koma á koppinn raftónlistarfestivalinu Extreme Chill Festival og raftónlistarkvöldunum Extreme Chill. Þannig að ég er að lifa draumaverkefnið mitt þessa dagana.

Hvað vantar á heimilið? Eftir að espresso-kaffikannan á heimilinu splundraðist í þúsund mola um jólin, er erfitt að fara fram úr á morgnana vitandi það að maður getur ekki hitað sér almennilegt kaffi.

Hvað langar þig sjálfan helst í? Ég hef nú yfirleitt ekki hátt um það ef mig langar í eitthvað...en innst inni langar mig rosalega í CANON EOS 5D MARK II-myndavélina sem ég er búinn að sjá í hillingum í þónokkurn tíma.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Átti hún barn fyrir 10 dögum?

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
12:55 Þóra Arnórsdóttir slær Beyoncé og Victoriu Beckham út enda komin í sitt fyrra form 10 dögum eftir barnsburð.   Meira »

Röddin í góðu formi eftir fæðinguna

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
í gær Óperusöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir lifir sannkölluðu heimsborgaralífi úti í Madrid, og þar er daglegt líf allt annað en hversdagslegt. Meira »

Leyfði Rihönnu ekki að heimsækja kærastann

Kim Kardashian.
07:00 Kim Kardashian vísaði Rihönnu á dyr þegar hún ætlaði að heimsækja kærastann hennar þegar hann var með tónleika í Lundúnum.   Meira »

Hundarnir á bakvakt

Charlize Theron á hjálpsama hunda.
í fyrradag Charlize Theron fær hjálp við barnauppeldið úr óvæntri átt.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is