Eru Jennifer Lopez og Marc Anthony búin að sættast?
Það hefur verið stirt á milli Marcs Anthonys og Jennifer Lopez eftir að þau skildu í sumar, fyrrverandi hjónin hafa varla talast við síðan. Nú virðist hins vegar vera að þiðna á milli þeirra því samkvæmt amerísku vefsíðunni TMZ eru samskiptin mun betri en áður.
Heimildarmaður vefmiðilsins sagði að hjónin hefðu ekki talast við mánuði áður en þau skildu og ekki hefðu samskiptin verið skárri fyrstu mánuðina á eftir. En nú kveður við annan tón og er hlýrra á milli þeirra en nokkru sinni fyrr.
Anthony og Lopez skildu síðasta sumar eftir sjö ára hjónaband. Á dögunum náðust myndir af þeim saman þar sem allt virtist í góðu en á einni myndinni sást hann leggja höndina á lærið á henni.
„Fólk heldur því fram að það sé merki um sátt á milli þeirra, en það er samt ekki gott að segja,“ sagði heimildarmaðurinn.
























