Óþolandi að útlitið sé í forgrunni
Keira Knightley er þeirrar skoðunar að leikkonur sem hafi útlitið með sér eigi oft í erfiðleikum með að sanna sig í kvikmyndum. Hún segist oft hafa verið í þeim sporum að vera ekki tekin alvarlega þar sem aðeins var litið lá hana sem snoppufríða konu sem kynni að leika. Með því að fá rétta hlutverkið í hendur sé þó hægt að breyta viðhorfi fólks og sanna leikhæfileika sína.
Í viðtali við breska dagblaðið Sun sagði Knightley að það væri nánast eins og fólk liti niður á sumar leikkonur, sérstaklega í dýrum og stórum kvikmyndum. Það eina sem næði athygli fólks væri útlitið, leikurinn væri aukaatriði. En með því að hreppa rétta hlutverkið væri hægt að snúa almenningsálitinu við á einni nóttu.
Knightley er nú á kynningarferðalagi vegna nýjustu myndar sinnar, A Dangerous Method, þar sem hún fer með stórt og krefjandi hlutverk geðsjúkrar konu sem haldin er kvalalosta og tekur upp samband við Sigmund Freud.
























