Annie Mist langar í nýjan bíl

Mynd 1 af 2
Annie Mist Þórisdóttir í viðtali í gærkvöldi.
Morgunblaðið Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is

Annie Mist Þórisdóttir minnti landann á að Ísland er sannarlega best í heimi þegar hún varð heimsmeistari í CrossFit þann 31. júlí á síðasta ári. Nýverið gekk hún til liðs við CrossFit Reykjavík og sinnir þar þjálfun ásamt því að búa sig af kappi undir næstu heimsleika í greininni. Hraustasta kona í heimi deilir hér með okkur sínum óskalista.

Óskaiðjan? Skemmtilegt starf, sem gefur mér færi á að ferðast ef mig langar, hitta og vinna með fólki. Starf sem ég get æft með. Í augnablikinu er ég í draumavinnunni þar sem ég er að ferðast um heiminn að kenna CrossFit ásamt því að vera meðeigandi að CrossFit Reykjavík hérna heima. Seinna meir kemur læknisnám sterkt inn.

Óskamaturinn? Kjúklinga-quesadillas.

Draumabíllinn? Aston Martin DB9. Flottasti bíll í heimi.

Hvað vantar á heimilið? Veistu, ég held að það sé nú lítið sem ekkert.

Hvað langar þig sjálfa helst í? Nýjan bíl eða nýtt hús (hlær).

Hvað er best heima? Íslenska vatnið! Ég hef víða ferðast og það jafnast ekkert á við það.

Ef þú mættir upplifa andartak úr fortíðinni upp á nýtt, hvað yrði fyrir valinu? 31.júlí 2011. Sá ógleymanlegi dagur eins og hann lagði sig.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Átti hún barn fyrir 10 dögum?

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
12:55 Þóra Arnórsdóttir slær Beyoncé og Victoriu Beckham út enda komin í sitt fyrra form 10 dögum eftir barnsburð.   Meira »

Röddin í góðu formi eftir fæðinguna

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
í gær Óperusöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir lifir sannkölluðu heimsborgaralífi úti í Madrid, og þar er daglegt líf allt annað en hversdagslegt. Meira »

Leyfði Rihönnu ekki að heimsækja kærastann

Kim Kardashian.
07:00 Kim Kardashian vísaði Rihönnu á dyr þegar hún ætlaði að heimsækja kærastann hennar þegar hann var með tónleika í Lundúnum.   Meira »

Hundarnir á bakvakt

Charlize Theron á hjálpsama hunda.
í fyrradag Charlize Theron fær hjálp við barnauppeldið úr óvæntri átt.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is