Flutningar, fundir og tónleikar í bígerð
Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is
Það er sjaldan lognmolla í kringum Einar Bárðarson. Um áramótin seldi hann Kanann FM100.5 og er í óða önn að koma Kananum í gang í nýju höfuðstöðvunum í Skipholti 31 sem forstöðumaður útvarpssviðs Skjásins. Einar er einnig að skipuleggja tónleika með hinni heimsfrægu Kiri Te Kanawa um næstu helgi í Hörpu.
Mánudagur Fyrsti vinnudagurinn í nýjum höfuðstöðvum Kanans. Nýi vinnustaðurinn lagðist rosalega vel í fólkið. CSI Las Vegas á Skjá Einum um kvöldið og svo að sjálfsögðu Jimmy Kimmel. Toppdagur, toppkvöld.
Þriðjudagur Átti símafund með Kiri Te Kanawa um tónleika sem ég er að halda með henni í Hörpu á sunnudaginn. Reyndi að horfa á Ísland - Spánn í EM, hafði ekki taugar í það.
Miðvikudagur Dagurinn byrjaði á pósti frá umboðsmanni Elton John, hann vildi bjóða mér á tónleika í Las Vegas, völlur alltaf á þessum umboðsmönnum. Áttum rosa kósí kvöld familían og bökuðum pizzu og skemmtum okkur konunglega. Missti ekki af Pan AM um kvöldið.
Fimmtudagur Brjálað veður og Reykjanesbrautin lokuð sem hefur aldrei gerst síðan ég flutti í Reykjanesbæ. Allur dagurinn meira og minna í steik útaf þessu þannig að ég hélt bara niðrí mér andanum og flaut þangað sem straumurinn tók mig.
Heyrði í Loga Geirs sem er með hugmynd að frábærum nýjum sjónvarpsþætti.
Föstudagur Skemmti mér konunglega með nafna mínum Einari Ágúst í frétta-föstudagsþætti Kanans. Fór og sótti nýjan hjóla-trainer í búðina og kíkti við í partí hjá SAGAFILM og hitta allt „fræga“ fólkið.
Laugardagur Vaknaði með krökkunum og horfðum saman á barnaefni stöðvanna. Síðan fór ég á mafíufund klukkan 11:00 og tók svo góðan tíma í sund í einni flottustu laug landsins í Reykjanesbæ. Eldaði góðan kvöldmat og hugsaði „rosalega er líf mitt blessað“.
Sunnudagur Krakkarnir fóru til ömmu sinnar afa í Garðabænum. Smá kósí stund hjá mér og frúnni, smá bíó, smá popp og kók seinni partinn. Sunnudagskvöld fyrir framan TV-ið og heimsyfirráð Kanans skipulögð á Ipaddinn.
























