Smartland Mörtu Maríu
|
Frægð
| mbl
| 6.2.2012
| 12:44
| Uppfært
7.2.2012
11:13
Madonna fékk hjörtu til að slá hraðar
Madonna átti sviðið þegar hún kom fram á Super Bowl hátíðinni og fékk hjarta Kelly Osbourne til að slá hraðar. Ungfrú Osbourne sagði á Twitter-síðu sinni að hún hefði heillast upp úr skónum.
„Hjarta mitt hefur aldrei slegið hraðar en þegar ég sá Madonnu á sviðinu. Hún var stórkostleg,“ sagði Osbourne á Twitter.
Það var ekki bara söngurinn sem þótti góður því föt söngkonunnar slógu í gegn. Hún klæddist fatnaði frá Givenchy og var gullið ekki sparað á dressið.
Það vakti athygli að hún gætti þess vel að handarbökin sæjust ekki og klæddist hún grifflum sem náðu upp á miðjan upphandlegg.
Ungfrú Osbourne var þó ekki sú eina sem var hrifin því Ashton Kutcher sagði á Twitter að Madonna væri flottust og Eva Longoria sparaði ekki stóru orðin.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























