Ekki reið út í Angelinu Jolie

Mynd 1 af 2
Jennifer Aniston. LUCAS JACKSON

Leikkonan Jennifer Aniston er orðin dauðþreytt á endalausum sögum þess efnis að henni sé illa við Angelinu Jolie og það sé kalt á milli þeirra. 

Jennifer Aniston var gift Brad Pitt, núverandi unnusta Angelinu Jolie, en þau skildu árið 2005. Pitt og Jolie kynntust á tökustað og í kjölfarið blossaði ástin upp á milli þeirra. Þá var Pitt ennþá giftur Aniston.

Aniston prýðir forsíðu InStyle og segir í viðtali við blaðið að hún sé yfir sig ástfangin af Justin Theroux, sem er leikari.

Angelina Jolie kemur við sögu í viðtalinu og Aniston segist vildi óska þess að fólk hætti að tala um þær því það væri engin leiðindi á milli þeirra.

„Þetta snýst bara um peninga. Fólk fær borgað fyrir að segja sögur af okkur í ákveðnum fjölmiðlum. Þetta hefur ekkert með raunveruleikann að gera,“ sagði hún í viðtalinu.

Pitt missteig sig þegar hann sagði í viðtali við Parade tímaritið að hjónaband hans og Aniston hefði verið svolítið óspennandi og hundleiðingleg. Seinna sá hann að sér og sagði að Aniston væri yndisleg manneskja og engum lík.

Aniston tók þessu ekki nærri sér og sagði að hún hefði lært mikið af hjónabandinu við Pitt og í dag vissi hún hvernig hún vildi haga lífi sínu.

„Eftir því sem ég verð eldri geri ég mér betur grein fyrir hvað hentar mér og eftir hverju ég sækist.“

24 febrúar næstkomandi verður myndin Wanderlust frumsýnd í Bandaríkjunum en Aniston kynntist kærastanum einmitt á tökustað myndarinnar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Átti hún barn fyrir 10 dögum?

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
12:55 Þóra Arnórsdóttir slær Beyoncé og Victoriu Beckham út enda komin í sitt fyrra form 10 dögum eftir barnsburð.   Meira »

Röddin í góðu formi eftir fæðinguna

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
í gær Óperusöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir lifir sannkölluðu heimsborgaralífi úti í Madrid, og þar er daglegt líf allt annað en hversdagslegt. Meira »

Leyfði Rihönnu ekki að heimsækja kærastann

Kim Kardashian.
07:00 Kim Kardashian vísaði Rihönnu á dyr þegar hún ætlaði að heimsækja kærastann hennar þegar hann var með tónleika í Lundúnum.   Meira »

Hundarnir á bakvakt

Charlize Theron á hjálpsama hunda.
í fyrradag Charlize Theron fær hjálp við barnauppeldið úr óvæntri átt.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is