Svaf ekki hjá í ár

Mynd 1 af 2
Courtney Cox og David Arquette meðan allt lék í lyndi. Reuters

Leikkonan Courteney Cox hefur verið orðuð við ýmsa menn síðan hún skildi við eiginmann sinn David Arquette. Hún mætti í viðtal til Howards Sters, sem er með útvarpsþáttinn Sirius XM, og þegar hún var spurð hvort hún væri byrjuð með Josh Hopkins þverneitaði hún því.

„Ég hef ekki sofið hjá í ár,“ sagði hún og hló.

Hún segist vera heimakær og elska að fá vini sína í heimsókn. Þegar hún er spurð hvort henni finnist gaman úti á lífinu neitar hún því.

Arquette var partíljónið í sambandinu að sögn Cox og segir hún að hann elski ennþá að fara út að dansa þótt hann sé hættur að drekka vín.

„Hann elskar að vera þar sem stuðið er, ég er miklu heimakærari.“

Aðspurð hvernig henni líði með það að hann sé kominn með kærustu játar hún að það sé skrýtið. Kærasta hans heitir Christina McLarty.

Cox og Arquette eiga saman sjö ára gamla dóttur sem heitir Coco.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Átti hún barn fyrir 10 dögum?

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
12:55 Þóra Arnórsdóttir slær Beyoncé og Victoriu Beckham út enda komin í sitt fyrra form 10 dögum eftir barnsburð.   Meira »

Röddin í góðu formi eftir fæðinguna

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
í gær Óperusöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir lifir sannkölluðu heimsborgaralífi úti í Madrid, og þar er daglegt líf allt annað en hversdagslegt. Meira »

Leyfði Rihönnu ekki að heimsækja kærastann

Kim Kardashian.
07:00 Kim Kardashian vísaði Rihönnu á dyr þegar hún ætlaði að heimsækja kærastann hennar þegar hann var með tónleika í Lundúnum.   Meira »

Hundarnir á bakvakt

Charlize Theron á hjálpsama hunda.
í fyrradag Charlize Theron fær hjálp við barnauppeldið úr óvæntri átt.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is