Smartland Mörtu Maríu
|
Frægð
| mbl
| 9.2.2012
| 11:20
| Uppfært
15:13
Kate Middleton mætti án Vilhjálms
Það gustaði af Kate Middleton þegar hún mætti í fyrsta skipti eins síns liðs á listasafnið National Portrait í Lundúnum þegar sýning Luciens Freuds var opnuð. Hún skartaði gráum ullarkjól sem var hnepptur að framan og með belti í mittið. Frú Middleton er verndari gallerísins. Þess má geta að hún hefur unum af listum en hún hnaut um Vilhjálm prins þegar hún lærði listasögu við St. Andrews University í Skotlandi.
Um þessar mundir er Vilhjálmur prins staddur á Falklandseyjum og mun ekki snúa til baka fyrr en eftir næstu mánaðamót. Það þýðir að frú Middleton verður ein á Valentínusardaginn hinn 14. febrúar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























