Viktoría enn undir feldi
Kryddpíurnar dreymir um að koma fram saman í sumar og syngja til heiðurs Elísabetu Bretlandsdrottningu sem fagnar nú 60 ára setu á valdastóli. Viktoría Beckham á raunar enn eftir að gefa samþykki sitt og vill ekki láta þvinga sig til neins. Nýleg ummæli Mel B urðu til þess að setja pressu á Viktoríu sem hefur ekki viljað svara af eða á og er enn undir feldi.
Mel B birtist nýlega í áströlsku sjónvarpi í morgunþættinum Sunrise og var þá spurð hvort Kryddpíurnar myndu hugsanlega koma aftur saman og syngja á Ólympíuleikunum í London í sumar. Varð hún öll uppveðruð og svaraði því til að rétti staðurinn fyrir þær til að koma aftur fram væru afmælistónleikar sem haldnir verða í sumar í tilefni af 60 ára valdatíð Bretlandsdrottningar.
Ummælin hafa kætt aðdáendur Kryddpíanna um allan heim en Viktoría er ekki eins kát enda finnst henni eins og það sé skylda hennar að samþykkja hugmyndina og syngja fyrir drottningu. Hún vill þó ekki láta þvinga sig til neins heldur taka endanlega ákvörðun á eigin forsendum, er haft eftir heimildamanni breska tímaritsins Closer sem er vel kunnugur tískudrottningunni.
























