Hættir til að tíma ekki að nota fíniríið sitt
Ásgeir Ingvason ai@mbl.is
Finnur sló á þráðinn til Gerðar Kristnýjar Guðjónsdóttur og komst að því að þessi flinki rithöfundur á sínar skrítnu hliðar.
1. Þegar ég var barn ætlaði ég að verða tannlæknir og myndlistarkona. Veturinn sem ég gekk til prestsins hjá sr. Halldóri Gröndal ætlaði ég hins vegar að verða prestur.
2. Ég fer alltaf í Faraos cigarer, eða Vindla faraós, þegar ég er í Kaupmannahöfn. Þar fást teiknimyndasögur, fígúrur og fleira skemmtilegt skrípódót.
3. Einu sinni var því spáð fyrir mér að ég flyttist til annarrar heimsálfu. Þess vegna er ég einmitt á útkikkinu eftir heppilegri álfu. Annars er ég á leiðinni til Indónesíu í apríl en er staðráðin í að koma þaðan aftur.
4. Ég tala stundum við sjálfa mig. Það má.
5. Sumarið 1980 tók ég þátt í hópdansatriði á mikilli ÍSÍ-hátíð í Laugardalnum. Fjöldi fimleikastúlkna fór í glitrandi bleika leikfimiboli og dansaði íþróttahreyfingunni til heiðurs.
6. Mér hættir til að tíma ekki að nota fíniríið mitt og geyma það bara inni í skápum og ofan í skúffum. Það er nauðsynlegt að fara að taka á þessari dellu.
7. Ef frænka mín Andrea Jónsdóttir er amma rokksins, eins og haldið hefur verið fram, eru synir mínir og rokkið fjórmenningar.
8. Ég var beðin um að kenna börnum í ritsmiðju í Gerðubergssafni síðasta sumar. Það var sko skemmtilegt.
9. Fyrir tveimur vikum sá ég sýningu kínverska listamannsins Ai Waiwai í Louisiana-safninu í Danmörku og stend mig að því að leiða hugann sífellt að henni.
10. Ég er afkomandi Halldórs hertekna frá Járngerðarstöðum. Hollenskur kaupsýslumaður keypti honum frelsi svo hann komst heim. Það var nú aldeilis heppilegt fyrir mig!
11. Reiðhjólið mitt er ljósblátt með myndum af fiðrildum og heitir Sumarfuglinn á sumrin en Svefnhjólið á veturna.
12. Eitt sinn átti ég skjóttan kött sem hét Ingunn Saltkráka í höfuðið á mömmu minni og uppáhaldsbókinni, Á Saltkráku eftir Astrid Lindgren. Kötturinn varð eitt sinn svo veikur að ég varð að gefa honum stera.
13. Þegar ég var unglingur las ég eftirfarandi ljóð í bók Jóns Friðriks Arasonar, Tveir fuglar og langspil: ,,ef ég væri skáld / væri himinninn lambhúshetta / og engum yrði kalt.“ Ég var heilluð.
14. Þegar ég var 19 ára vann ég við að ryksuga köngulær í suðurfrönsku klaustri. Eftir það fannst mér þær eilítið geðslegri en áður.
15. Ég hef farið í handahlaup á kínverskum hótelgangi.
























