Slær í gegn sem plötusnúður
Kate Moss virðist eiga framtíðina fyrir sér sem plötusnúður. Ofurfyrirsætan sló í gegn á tískusýningu hjá Prada-tískuhúsinu í Frakklandi í janúar, þó ekki á sýningarpallinum eins og hún á vanda til, heldur sem skífuþeytir. Síðan hefur rignt yfir hana fyrirspurnum og nú vilja allir fá Moss til að taka að sér hlutverk plötusnúðs á hátískusýningum.
Moss er til í slaginn og býður að koma fram í hálftíma sem plötusnúður og þiggja um 50 milljónir króna að launum. Samkvæmt heimildamanni breska blaðsins Sun fann ofurfyrirsætan sig í hlutverki plötusnúðs á tískusýningu Prada og er nú til í að endurtaka leikinn. Hún ætlar þó að einblína á valda viðburði og aðeins koma fram á hátískusýningum.
Moss er þó ekki hætt að starfa sem fyrirsæta og var nýlega valin andlit tískurisans Mango.
























