Anna Mjöll sá Whitney Houston í síðustu viku

Mynd 1 af 2
Anna Mjöll Ólafsdóttir.

Íslenska söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir sá Whitney Houston á veitingastaðnum Crustacean í Beverly Hills í síðustu viku. Whitney Houston sat á næsta borði við Önnu Mjöll. Houston var með fyrrverandi eiginmanni sínum, Bobby Brown, og dóttur þeirra, Bobbi Christinu, sem er 18 ára.

Anna Mjöll greinir frá því á facebooksíðu sinni að hún hafi þurft að bregða sér frá en var staðráðin í að heilsa upp á þau. Þegar hún sneri aftur voru þau á bak og burt.

„This is so weird, I just saw Whitney, Bobby Brown and Bobbi Christina a week ago having dinner together at the next table @ Crustacean in Beverly Hills - I had to get up and when I got back I was going to stop by their table to tell her I love her, but they had left and she was gone...“ segir Anna Mjöll á Facebook. 

Anna Mjöll er búsett í Los Angeles þar sem hún gerir það gott sem söngkona. Hún komst í heimsfréttirnar þegar hún gekk að eiga forríka bílasalann Cal Worthington í apríl í fyrra. Eftir nokkurra mánaða hjónaband skildi leiðir. Anna Mjöll gerði samning við Worthington um að hún mætti ekki tjá sig um skilnaðinn fyrr en hálfu ári eftir lögskilnað.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Átti hún barn fyrir 10 dögum?

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
12:55 Þóra Arnórsdóttir slær Beyoncé og Victoriu Beckham út enda komin í sitt fyrra form 10 dögum eftir barnsburð.   Meira »

Röddin í góðu formi eftir fæðinguna

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
í gær Óperusöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir lifir sannkölluðu heimsborgaralífi úti í Madrid, og þar er daglegt líf allt annað en hversdagslegt. Meira »

Leyfði Rihönnu ekki að heimsækja kærastann

Kim Kardashian.
07:00 Kim Kardashian vísaði Rihönnu á dyr þegar hún ætlaði að heimsækja kærastann hennar þegar hann var með tónleika í Lundúnum.   Meira »

Hundarnir á bakvakt

Charlize Theron á hjálpsama hunda.
í fyrradag Charlize Theron fær hjálp við barnauppeldið úr óvæntri átt.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is