Í rusli yfir andláti Whitney Houston

Mynd 1 af 2
Whitney Houston og Bobby Brown meðan allt lék í lyndi. Reuters

Bobby Brown, fyrrverandi eiginmaður Whitney Houston, er miður sín yfir andláti söngkonunnar sem lést á Beverly Hilton-hótelinu í Los Angeles kl. 15.55 í gærdag.

Talsmaður lögreglunnar í Beverly Hills segir að neyðarlínan 911 hafi fengið tilkynningu um andlátið kl. 15.43. Hótelstarfsmenn hófu þegar lífgunartilraunir á söngkonunni án árangurs. Hún var úrskurðuð látin kl. 15.55.

Söngvarinn Johnny Gill sagði í samtali við CNN-sjónvarpsstöðina að Bobby Brown hefði fengið áfall þegar hann fékk fréttirnar. Það sama má segja um dóttur þeirra, Bobbi Kristinu, sem er 18 ára.

Brown og Houston skildu árið 2007 eftir 15 ára hjónaband. Fréttamiðlar vestanhafs sögðu að unnusti Houston, söngvarinn Ray J, hefði komið að henni látinni en talsmaður söngkonunnar heitinnar neitar því. Talsmaðurinn segir að það hafi verið lífvörður hennar sem kom að henni.

Enn hefur ekki verið staðfest hver orsök dauða hennar var en rannsókn stendur yfir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Átti hún barn fyrir 10 dögum?

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
12:55 Þóra Arnórsdóttir slær Beyoncé og Victoriu Beckham út enda komin í sitt fyrra form 10 dögum eftir barnsburð.   Meira »

Röddin í góðu formi eftir fæðinguna

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
í gær Óperusöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir lifir sannkölluðu heimsborgaralífi úti í Madrid, og þar er daglegt líf allt annað en hversdagslegt. Meira »

Leyfði Rihönnu ekki að heimsækja kærastann

Kim Kardashian.
07:00 Kim Kardashian vísaði Rihönnu á dyr þegar hún ætlaði að heimsækja kærastann hennar þegar hann var með tónleika í Lundúnum.   Meira »

Hundarnir á bakvakt

Charlize Theron á hjálpsama hunda.
í fyrradag Charlize Theron fær hjálp við barnauppeldið úr óvæntri átt.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is