Nektarsenurnar lítið mál
Christina Ricci fer með annað aðalhlutverkið í myndinni Bel Ami og birtist kvikmyndahúsagestum þar allsnakin. Leikkonan þjáðist af lystarstoli þegar hún var táningur og óttaðist nektarsenur hér fyrr á árum en nú hefur viðhorf hennar breyst og henni er sama þó að hún þurfi að koma fram lítið eða ekkert klædd.
Ricci segist nú vera ánægð í eigin skinni, lystarstolið hafi tengst unglingsárunum þegar sjálfsmyndin hafi ekki verið upp á marga fiska. Í viðtali við tímaritið Style viðurkennir leikkonan að hún hafi reyndar heitið því að loknum upptökum á myndinni Bel Ami að hún myndi bíða með það í nokkur ár að koma aftur fram nakin. En hún hafi ekki fengið við það ráðið því í nýju sjónvarpsþáttaröðinni Pam Am, þar sem Ricci fer með eitt aðalhlutverkið, er hún á nærbuxunum í hverjum þætti.
„Ég tók sjálfa mig í gegn í varðandi nektarsenur,“ segir leikkonan í blaðinu. „Þetta er alveg eins og að fara á ströndina. Það er hægt að eyða öllum tímanum í að velta útlitinu fyrir sér eða það er hægt að sleppa því alveg og drífa sig niður á strönd og hafa það skemmtilegt.“
























