Smartland Mörtu Maríu
|
Frægð
| mbl
| 13.2.2012
| 23:15
Sláandi myndir af hótelherbergi Whitney Houston
Hótelherbergi Whitney Houston var ekki glæsilegt þegar hún fannst þar látin á laugardaginn. Hennar síðasta máltíð samanstóð af hamborgara og frönskum. Auk þess var kalkúnasamloka á baðherberginu en söngkonan hefur ætlað að borða hana þegar hún var búin í baði. Eins og sést á myndunum var bæði bjór og tómt kampavínglas á borðinu.
Vefmiðilllinn TMZ birtir myndir sem teknar voru á hótelherberginu eftir að söngkonan fannst látin.
Eins og fram kom í fréttum í dag er talið að Houston hafi látist af völdum neyslu áfengis og eiturlyfja.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























