„Ætli hann hafi ekki verið svolítið afbrýðisamur“

Mynd 1 af 3
Fyrrum hjónin Seal og Heidi Klum. mbl.is/Cover Media

Fyrirsætan Heidi Klum og tónlistarmaðurinn Seal skildu á dögunum eftir sjö ára hjónaband. Nú berast fréttir af því að þau séu að íhuga að byrja aftur saman. Þetta kemur fram í tímaritinu OK! Heimildarmaður blaðsins segir að þau séu alvarlega farin að ræða framtíð sína og hafi nú þegar sagt börnunum að þau ætli að reyna aftur.

„Þau þurfa að finna út úr þessu í friði, bara tvö ein,“ sagði heimildarmaður.

Klum og Seal þóttu mikil fyrirmyndarhjón og kemur fram í tímaritinu OK! að ástarblossinn á milli þeirra hafi ekki slokknað. Þau eiga fjögur börn samtals en elsta barnið átti hún með fyrrverandi eiginmanni sínum.

„Þau elska hvort annað afar heitt, en þau þurftu að fá smá fjarlægð hvort frá öðru til að meta stöðuna.“

Seal var ósáttur við hversu lítið hann sá af eiginkonu sinni og fannst honum hún vinna of mikið.

„Ætli hann hafi ekki verið svolítið afbrýðisamur út í hana,“ sagði heimildarmaður.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Átti hún barn fyrir 10 dögum?

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
12:55 Þóra Arnórsdóttir slær Beyoncé og Victoriu Beckham út enda komin í sitt fyrra form 10 dögum eftir barnsburð.   Meira »

Röddin í góðu formi eftir fæðinguna

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
í gær Óperusöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir lifir sannkölluðu heimsborgaralífi úti í Madrid, og þar er daglegt líf allt annað en hversdagslegt. Meira »

Leyfði Rihönnu ekki að heimsækja kærastann

Kim Kardashian.
07:00 Kim Kardashian vísaði Rihönnu á dyr þegar hún ætlaði að heimsækja kærastann hennar þegar hann var með tónleika í Lundúnum.   Meira »

Hundarnir á bakvakt

Charlize Theron á hjálpsama hunda.
í fyrradag Charlize Theron fær hjálp við barnauppeldið úr óvæntri átt.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is