Smartland Mörtu Maríu
|
Frægð
| Cover Media
| 14.2.2012
| 20:00
Sækir í gamla kærastann
Kim Kardashian leitar nú til fyrrverandi kærasta síns, fótboltastjörnunnar Reggies Bush, en þau áttu í losaralegu sambandi um nokkurt skeið og hættu saman vorið 2010. Kardashian stendur nú í skilnaði við körfuboltaleikmanninn Kris Humphries en hjónabandið entist aðeins 72 daga.
Bush, sem leikur með NFL-deildinni, hefur að sögn reynst veruleikasjónvarpsstjörnunni styrk stoð í erfiðleikunum undanfarið og á sunnudag snæddu þau saman hádegisverð í Beverly Hills og virtust skemmta sér konunglega, samkvæmt heimildamanni tímaritsins Life & Style.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























