„Ég er ekki ólétt“

Mynd 1 af 2
Jennifer Aniston.

Leikkonan Jennifer Aniston þvertekur fyrir að vera ólétt. Hún segir ótrúlegt hvað fólk nenni að velta sér upp úr einkamálum hennar. Hún segist vera undir miklum þrýstingi um að stofna fjölskyldu.

Jennifer Aniston fann ástina fyrir rúmu ári þegar hún var við tökur á nýjustu mynd sinni, The Wanderlust. Hún og mótleikari hennar, Justin Theroux, 44 ára, urðu ástfangin á tökustað.

Í viðtali við GQ-tímaritið segist hún vera alveg róleg hvað barneignir varðar.

„Ég er ekki fallin á tíma. Ef ég verð ólétt þá er það frábært en ef ekki þá er það bara þannig. Ég er mjög róleg yfir þessu öllu,“ sagði hún í viðtali við blaðið.

Hún talaði um hjónaband sitt við Brad Pitt og játaði að það hefði ekki verið eins glansandi fínt og það leit út fyrir að vera. Hún segir að fólk hafi ákveðnar hugmyndir um hamingju.

„Þetta er alger klisja. Fólk heldur að það þurfi að eiga hús, mann og börn til að fanga hamingjuna. Það er vandasamt að eiga börn.“

Hún segir að þau Pitt hafi vaxið í sundur. „Stundum er það bara þannig að fólk getur ekki verið saman lengur.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Átti hún barn fyrir 10 dögum?

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
12:55 Þóra Arnórsdóttir slær Beyoncé og Victoriu Beckham út enda komin í sitt fyrra form 10 dögum eftir barnsburð.   Meira »

Röddin í góðu formi eftir fæðinguna

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
í gær Óperusöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir lifir sannkölluðu heimsborgaralífi úti í Madrid, og þar er daglegt líf allt annað en hversdagslegt. Meira »

Leyfði Rihönnu ekki að heimsækja kærastann

Kim Kardashian.
07:00 Kim Kardashian vísaði Rihönnu á dyr þegar hún ætlaði að heimsækja kærastann hennar þegar hann var með tónleika í Lundúnum.   Meira »

Hundarnir á bakvakt

Charlize Theron á hjálpsama hunda.
í fyrradag Charlize Theron fær hjálp við barnauppeldið úr óvæntri átt.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is