Kevin Costner flytur ræðu í útför Whitney Houston
Leikarinn Kevin Costner mun halda ræðu í útför vinkonu sinnar og samstarfskonu Whitney Houston. Saman léku þau í myndinni The Bodyguard árið 1992.
Herra Costner verður þó alls ekki eina stjarnan sem mun láta ljós sitt skína í útförinni því söngvararnir Stevie Wonder og Aretha Franklin ætla að taka lagið.
Framleiðandinn Clive Davis, sem uppgötvaði Houston á sínum tíma og starfaði við hlið hennar á ferli hennar, er einn af aðalskipuleggjendum útfararinnar. Hann sagði í samtali við People að fjölskylda Houston væri í miklu áfalli. „Þau eru algerlega í rúst en þau munu komast í gegnum þetta.“
Það er þó ekki bara fjölskylda Houston sem syrgir því Davis er langt niðri. Hann reynir þó að horfa fram á veginn og vera stuðningur við syrgjandi ástvini söngkonunnar.
Heimildarmaður sagði að Davis stæði þétt við bakið á fjölskyldu Houston og væri kletturinn í lífi þeirra þessa dagana.
„Hann sér um að skipuleggja allt í kringum útförina og fjölskylda Houston er mjög þakklát fyrir hans framlag,“ sagði heimildarmaður.
Það hafa verið sögusagnir á kreiki í vestanhafs að fyrrverandi eiginmanni Houston, Bobby Brown, væri ekki boðið í útförina. Heimildarmaður sagði að það væri ekki rétt.
Útförin fer fram í New Hope Bapist-kirkjunni í Newark, New Jersey. Houston þótt vænt um kirkjuna því hún hóf feril sinn í henni. 1500 manns hefur verið boðið í jarðarförina og verður henni bæði sjónvarpað og útvarpað svo aðdáendur hennar geti kvatt hana á sinn hátt.
























