Smartland Mörtu Maríu
|
Frægð
| mbl
| 16.2.2012
| 23:53
Kynlífsfíkn er ekkert grín
Kvikmyndin Shame í leikstjórn Steve McQueens fjallar um Brandon sem er kynlífsfíkill á fertugsaldri. Aðalleikarar myndarinnar eru Michael Fassbender, Carey Mulligan, Nicole Beharie, James Badge Dale og Hannah Ware.
Myndin fjallar um Brandon sem búsettur er í New York. Klámið hefur yfirtekið líf hans. Hann hangir á klámsíðum í tölvunni á meðan hann er í vinnunni og sefur hjá vændiskonum. Þess á milli afklæðir hann konurnar sem á vegi hans verða með augunum.
Kvikmyndin Shame er athyglisverð og sýnir vel hversu alvarleg kynlífsfíkn er. Myndin er sýnd í Sambíóunum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























