Lífið hófst þegar ég hætti að drekka

Mynd 1 af 2
Linda Pétursdóttir hefur verið edrú í 10 ár. Ernir Eyjólfsson

Alheimsfegurðardrottningin Linda Pétursdóttir á 10 ára edrúafmæli í dag en hún hætti að drekka áfengi 2002. Á facebooksíðu sinni segist Linda vera alsæl með þessi 10 ár.

„Lífið byrjaði í raun fyrst þegar ég varð edrú. Það er ekki hægt að líkja lífinu í dag saman við líf þar sem maður er undir oki Bakkusar alla daga,“ segir Linda.

Aðspurð um líðan sína í dag segist hún vera í fantagóðu formi.

„Mér líður mjög vel í dag. Ég er búin að fara á góða æfingu og í sauna. Svo er það göngutúr í góða veðrinu með familíunni minni og svo er kærastinn að bjóða mér út að borða í kvöld í tilefni áfangans,“ segir Linda.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Átti hún barn fyrir 10 dögum?

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
12:55 Þóra Arnórsdóttir slær Beyoncé og Victoriu Beckham út enda komin í sitt fyrra form 10 dögum eftir barnsburð.   Meira »

Röddin í góðu formi eftir fæðinguna

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
í gær Óperusöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir lifir sannkölluðu heimsborgaralífi úti í Madrid, og þar er daglegt líf allt annað en hversdagslegt. Meira »

Leyfði Rihönnu ekki að heimsækja kærastann

Kim Kardashian.
07:00 Kim Kardashian vísaði Rihönnu á dyr þegar hún ætlaði að heimsækja kærastann hennar þegar hann var með tónleika í Lundúnum.   Meira »

Hundarnir á bakvakt

Charlize Theron á hjálpsama hunda.
í fyrradag Charlize Theron fær hjálp við barnauppeldið úr óvæntri átt.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is