Ekki missa af þessari stórmynd
Engu að síður er sagan feikilega áhrifarík og samnefnd kvikmynd sem gerð var árið 2005 er mögnuð áhorfs.
Sagan segir frá Justin Quayle, hæglátum diplómata á vegum breska ríkisins með aðsetur í Kenýa. Hann er garðyrkjumaður í frístundum og reynir eftir megni að forðast árekstra og vesen. Líf hans umturnast þegar hann fær þær fregnir að konan hans, blaðakonan Tessa, hafi verið myrt. Hinn óframfærni Justin leggur upp í ferð til að leita sannleikans um dauða Tessu. Í ljós kemur að alþjóðlegt lyfjafyrirtæki hefur verið að stunda prófa kolólöglegar prófanir með nýtt berklalyf á innfæddum í Kenýa, og hyggst setja það á markað jafnvel þótt prófanirnar hafi sýnt fram á hættulegar aukaverkanir. Gríðarlegir peningar eru í húfi og aðilar sem hagsmuna eiga að gæta hika ekki við að koma forvitnum fyrir kattarnef. Fyrstu viðbrögð sem Justin fær við eftirgrennslunum sínum eru þau að best sé að láta kyrrt liggja og syrgja í friði og ró. Þegar hann heldur rannsókninni áfram fara skilaboðin að verða skýrari uns hann er tekinn að óttast um líf sitt. Engu að síður afræður hann að afhjúpa sannleikann um örlög konu sinnar.
The Constant Gardener var tilnefnd til fernra Óskarsverðlauna á sínum tíma og hlaut breska leikkonan Rachel Weisz verðlaunin sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir hlutverk Tessu Quayle. Úrvalsleikarinn Ralph Fiennes fer með hlutverk Justins og Bill Nighy fer sérlega vel með hlutverk sir Bernards Pellegrins, vafasams yfirmanns bresku ræðismannsskrifstofunnar í Kenýa.
Myndin er sýnd á RÚV í kvöld.
























