Er með fóbíu fyrir leiðindum
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Reynir Lyngdal ver dögunum nú í klippiherberginu. Eftirvinnsla á myndinni Frost er komin í fullan gang eftir ævintýralegar tökur á Langjökli í desember og janúar. Um er að ræða vísindatrylli sem hefst á því að söguhetjurnar koma að mannlausum jöklarannsóknarbúðum á ónefndum jökli. Von er á Frosti í kvikmyndahús með haustinu, en fyrr í mánuðinum keypti norrænt fyrirtæki alþjóðlegan dreifingarrétt myndarinnar.
Finnur fékk Reyni til að ljóstra upp nokkrum leyndarmálum:
1. Ég stenst ekki carpaccio og sushi. Hrátt er málið. Svo er ég sólginn í dökkt súkkulaði.
2. Hjartað slær í Barcelona, borginni þar sem ég lærði að leikstýra og elda.
3. Minn aðalréttur er sjávarréttapasta. Það er réttur sem ég erfði frá Erni nokkrum Marinó í gegnum vin minn Jóa B. og er ég núna búinn að „mastera“ hann og gera að mínum rétti.
4. Miles Davis er uppáhaldið. Ef hægt væri að gera kvikmynd sem hefði sömu hughrif og platan hans Kind of Blue væri ég til í að gera hana.
5. Ég kann að meðhöndla partner-sög, sem notuð er til að saga sundur steypu.
6. Ég á mér það undarlega áhugamál að vera mjög áhugasamur um flísalögn, þ.e.a.s. annarra manna flísalögn, og samsetningu á flísum. Ég á óvenjumikið af myndum á símanum mínum af gólfum og veggjum af baðherbergjum alls staðar að úr heiminum.
7. Það er fátt sem ég get ekki borðað, en ofnsteikt lifur er það versta sem ég veit.
8. Mitt stærsta afrek er að hafa eignast og alið upp dóttur mína Unu Margréti. Mig dreymir um bjarta framtíð fyrir hana.
9. Ég er með fóbíu fyrir leiðindum, og almenn neikvæðni og rógburður fer í taugarnar á mér.
10. Sjálfur er ég frekar jákvæður, sem er stundum neikvætt, en oftast jákvætt.
11. Þegar ég var lítill strákur ætlaði ég að vera lögga fyrir hádegi, slökkviliðsmaður eftir hádegi og forseti á kvöldin og um helgar. Ég á þetta allt eftir!
12. Að setja sokka í vél og taka úr vél þykir mér algjört helvíti – sérstaklega ef þeir eru allir svartir.
13. Ég hef reynt að temja mér þann flotta enska sið að segja sem oftast takk . Man það yfirleitt.
14. Ég á mjög mikið af skyrtum, þá sérstaklega köflóttum og svörtum.
15. Nýlega spilaði ég John Grant-plötuna Queen of Denmark svo mikið að ég fékk næstum ógeð. Ætla samt að tékka á tónleikunum í sumar.
























