Smartland Mörtu Maríu
|
Frægð
| Cover Media
| 19.2.2012
| 23:25
Fær stjörnu á frægðarstéttinni
Það er stór dagur framundan hjá Jennifer Aniston því nú er komið að því að hún fái loks stjörnu á frægðarstéttinni í Hollywood, Hollywood Walk of Fame. Stjarna Aniston verður afhjúpuð við hátíðlega athöfn 22. febrúar næstkomandi fyrir framan West Hollywood-hótelið að viðstöddu fjölmenni.
Með stjörnunni er Aniston heiðruð fyrir framlag sitt til sjónvarps- og kvikmyndalistarinnar en hún er einna þekktust fyrir túlkun sína á Rachel Green í gamanþáttaröðinni langlífu Friends.
Senn líður að frumsýninu nýjustu myndar leikkonunnar, grínmyndarinnar Wanderlust, þar sem Aniston leikur á móti unnusta sínum, Justin Theroux.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























