Smartland Mörtu Maríu
|
Frægð
| Cover Media
| 22.2.2012
| 7:06
Biður Ashton Kutcher afsökunar
Charlie Sheen iðrast ummæla sinna um Ashton Kutcher sem hann lét falla nýlega og hefur beðið hann opinberlega afsökunar. Kutcher fékk nýtt hlutverk í sjónvarpsþættinum vinsæla Two and a Half Men eftir að Sheen var rekinn þaðan á síðasta ári og hefur leikarinn hvatvísi greinilega enn ekki jafnað sig á áfallinu.
Sheen lét þau ummæli falla á dögunum að hann gæti ekki logið lengur, Ashton væri hörmulegur í hlutverki sínu í Two and a Half Men og handritið væri hræðilegt. Nú hefur hinn uppstökki leikari tekið orð sín aftur og birt opinberlega afsökunarbeiðni á fréttavefnum TMZ. Þar segir: Kæri Ashton. Ég sýndi þér óvirðingu og iðrast þess, þú átt betra skilið. Við hitt stend ég, sem snýr að handritsgerð þáttarins. Kveðja, CS.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























