Smartland Mörtu Maríu
|
Frægð
| Cover Media
| 23.2.2012
| 11:55
Kardashian gengur með stelpu
Hollywood-bomban Kourtney Kardashian er ólétt að sínu öðru barni. Nú hefur hún staðfest að hún gangi með stúlku. Kardasian býr með unnusta sínum, Scott Disick, sem margir kannast eflaust við úr raunveruleikaþáttum Kardashian-systranna. Saman eiga þau soninn Mason, sem er tveggja ára. Kardashian er himinlifandi yfir því að vera ólétt að stelpu.
„Við erum svo hamingjusöm með að fá litla stelpu og það verður gaman að fá að deila því með Mason,“ sagði Kardashian í samtali við E! online.
Heimildarmaður sagði í samtali við Life & Style að Kardashian óskaði þess að hún fengi stelpu. Þótt henni þætti frábært að eiga son langaði hana að geta klætt stelpu upp og verið vinkona hennar í framtíðinni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























