Vill aukakílóin aftur

Katherine Jenkins vill aukakílóin aftur. Velska óperudívan hefur grennst töluvert með þátttöku sinni í bandaríska sjónvarpsþættinum Dancing with the Stars en um leið og honum lýkur ætlar hún að bæta aftur á sig nokkrum kílóum.

Jenkins hefur lagt mjög hart að sér við æfingar og keppni ásamt dansfélaga sínum, atvinnudansaranum Mark Ballas, og hefur lést síðustu mánuði, raunar fullmikið fyrir hennar eigin smekk.

„Ef ég á að segja alveg eins og er þá er ég ánægðari með mig aðeins þéttari og með meiri línur,“ sagði Jenkins í viðtali í breska sjónvarpsþættinum Daybreak. „Ég get ekki beðið eftir því að bæta á mig aftur nokkrum kílóum. Mamma verður líka voðalega glöð.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál