Dorrit Moussaieff og Ólafur Ragnar Grímsson heimsóttu veitingastaðinn Pallinn á Húsavík í dag þar sem stjörnukokkurinn Völundur Snær Völundarson ræður ríkjum. Þótt hjónin séu á hringferð um landið sló Dorrit ekkert af þegar kom að skvísugangi.
Hún klæddist skósíðri kápu, ljósum buxum og var með stór sólgleraugu. Það sem toppaði allt voru bleiku sokkarnir sem hún klæddist í heimsókninni. Íslenskar skvísur mættu alveg leika þetta eftir og splæsa á sig bleikum sokkum til að vera örlítið sumarlegri.