Kynþokkafull í myndaþætti

Katie Holmes í ameríska tískublaðinu Elle.
Katie Holmes í ameríska tískublaðinu Elle. Ljósmynd/Elle.com

Katie Holmes sýnir á sér nýjar hliðar á myndunum sem teknar voru fyrir ameríska tískublaðið Elle. Á forsíðu blaðsins klæddist hún topp frá Tom Ford og var í buxum úr sinni fyrstu tískulínu, Holmes & Yang. Á myndunum skartar hún alveg nýju útliti, skósíðu hári og komin með þvertopp. Myndirnar og viðtalið var tekið í maí og þá hefur hún verið búin að taka ákvörðun um að skilja við stórleikarann Tom Cruise en hún tilkynnti honum fyrir skömmu að hún vildi skilnað.

Tom Cruise var staddur á Íslandi þegar hann fékk fréttirnar og varð niðurbrotinn við þær. Í viðtalinu í Elle lét hún hafa eftir sér að henni fyndist hún miklu kynþokkafyllri í dag en þegar hún var í kringum tvítugt.

Katie Holmes á forsíðu Elle.
Katie Holmes á forsíðu Elle. Ljósmynd/Elle.com
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál