Klínt á forsíðu Marie Claire

Tímarit um allan heim vilja ekkert fremur en að hafa …
Tímarit um allan heim vilja ekkert fremur en að hafa Kate Middleton á forsíðu en hún neitar. Ljósmynd/AFP

Kate Middleton prýðir ágústhefti suðurafríska Marie Claire. Það er að segja, tölvugerð mynd af henni, en útgefendur sáu sér þann leik á borði að skálda hertogaynjuna á forsíðuna hjá sér því engin leið er að fá hana í myndatöku. Ekki að hertogaynjan hafi neitt persónulega á móti Marie Claire heldur hefur hún harðneitað öllum tímaritum um myndatökur, meira að segja þeim flottustu eins og Vogue.

Innan í Marie Claire-heftinu ber fyrir fleiri tölvugerðar myndir þar sem Kate Middleton er klædd í mismunandi kjóla og fatnað eftir þekkta suðurafríska hönnuði. Kjóllinn sem „hún“ klæðist á forsíðunni er eftir Clive Rundle.

Þetta er í annað skiptið á stuttum tíma sem tímarit bregða á ráð að birta tölvugerðar myndir af Kate. Bandaríska tímaritið New Republic útbjó mynd af henni þar sem tennurnar voru afmyndaðar og innihélt greinin gagnrýni á breska heimsveldið.

HÉR má sjá forsíðumyndina nýjustu.

Hjónin Kate Middleton og Vilhjálmur prins.
Hjónin Kate Middleton og Vilhjálmur prins. Chris Jackson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál