„Ég elska borgarstjóra Íslands“

Lady Gaga.
Lady Gaga. mbl.is/Styrmir Kári

Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, virðist hafa hrifið söngkonuna Lady Gaga upp úr skónum. 

Aðdáandi hennar á Twitter bað Gaga að nefna þann forseta í allri heimssögunni sem væri í hvað mestu eftirlæti hjá henni. 

Lady Gaga sinnir aðdáendum sínum afar vel og svarar þeim gjarnan í eigin persónu og var með svarið á reiðum höndum. Hún nefndi hins vegar engan forseta til sögunnar heldur svarar spurningunni einfaldlega: „Ég elska borgarstjóra Íslands.“

Vel fór á með Yoko Ono, Lady Gaga og Jóni Gnarr þegar kveikt var á friðarsúlunni í Viðey fyrr í mánuðinum. 

Jón Gnarr.
Jón Gnarr. mbl.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál